Kíti á gömlu síðuna hans Andra.... andritomas.tk
Rakst á nokkra helvíti góða punkta:
"Allt það besta er liðið. Eins
niðurdrepandi og það er nú. Ari með sítt permanent, skippt í miðju.
Svona hlutir koma aldrei aftur. Allt eftir þetta, aðeins léleg
eftirlíking og endurtekning."
"Ekki þessi innhaldslausu
hauspokapund, heldur nigótín trúnó, ekki sígó, heldur
vör."
"Já ég er frekar feiminn gaur og
höndla óþægilegar aðstæður hrikalega illa. Á ég að stoppa og
spjalla þegar ég hitti einhvern sem ég kannast við, kílann í magann
og labba áfram, segja "þéttur, spaði, lauf, buxnaklauf", kinka
kolli eða girða niður um mig og gefast bara upp. Innahaldslaust
small talk er eitthvað sem á að byrja kenna í grunnskóla, jafnvel
ein af fimm greinum í samræmdu prófunum."
"Í dag hætti klukkann að slá. Í
raun hætti hún að slá fyrir tveimur dögum en minningin ein hefur
fleytt mér áfram þessa tvo daga og vonandi eitthvað áfram. Á
þriðjudag var nefnilega sýndur lokaþáttur seríunar Judging Amy.
Himnarnir opnuðust og gleyptu sál mína. Í dag sérður aðeins skugga
minn á sveimi, ég ligg sjálfur í gröf minni og dreymi um að lifa í
þeim heimi sem ég aldrei gleymi, Judging Amy."
"Í kvöld er ég að fara í rautt
partí....Þetta mun orsaka það, ef að líkum lætur, að ég mun geta
pissað blóði útí eitt allt partíið og verið þar með hrókur alls
fagnaðar."
"........Vid vorum saman komnir
flestir félagarnir og pabbi var líka tarna á stadnum. Vid vorum á
einhverjum skítapobb og ég var mikid ad passa mig ad vera ekki
ofurolvi, syna pabba ad ég gæti verid hress án áfengis, eda svona í
hófi allavega........."